Lífið

Asíski draumurinn: Draumur strákanna rættist þegar þeir fengu að baða fíl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þvílíkir snillingar.
Þvílíkir snillingar.
Asíski draumurinn var á dagskrá Stöðvar 2 síðastliðið föstudagskvöld en eitt atriði vakti sérstaka athygli. Það var þegar Auddi og Steindi þurftu að baða fíla.

Í þáttunum keppa þeir Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar Steinþórsson á móti þeim Sverri Þór Sverrissyni og Péturi Jóhanni Sigfússyni líkt og í síðustu þáttaröð.

Asíski draumurinn er framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012.

Það hafði í raun alltaf verið draumur Steinda að fá að baða fíl. Eftir að hafa gefið fílunum yfir hundrað banana unnu þeir traust þeirra og fengu að fara á bak. Því næst böðuðu þeir fílana og má sjá hvernig til tókst hér að neðan.


Tengdar fréttir

Auddi og Steindi barðir í köku í Asíska drauminum

Þriðji þátturinn af Asíska drauminum var á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldið. Þar keppa þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Sverrir Þór Sverrisson á móti Auðunni Blöndal og Steinda Jr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.