Tony Parker spilar ekki meira með Spurs í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2017 19:00 Tony Parker borinn af velli í síðasta leik Spurs sem var hans síðasti á þessu tímabili. Vísir/AP
Tony Parker, leikstjórnandi San Antonio Spurs, verður ekki meira með liðinu á þessu tímabili eftir að hafa meiðst illa á hné í síðasta leik liðsins. Parker þarf að fara í aðgerð á vinstra hné eftir að hafa lent illa í öðrum leik San Antonio Spurs og Houston Rockets í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Það hefur ekki verið gefið út hvað nákvæmlega gerðist fyrir Parker en það er allavega ljóst að hann spilar ekki meira í úrslitakeppninni. Þetta eru fyrstu virkilega alvarlegu meiðsli Tony Parker á hans fimmtán ára ferli en hann missti einu sinni úr vegna handarmeiðsla. Þetta er mikið áfall fyrir Spurs sem gæti lent í miklum vandræðum með leikstjórnendastöðuna þar sem eftir lifir úrslitakeppninnar. Það má búast við því að Ástralinn Patty Mills komi inn í byrjunarliðið fyrir hann. Spurs vann annan leikinn á móti Houston Rockets 121-93 og jafnaði þar með metin í einvíginu í 1-1. Parker var búinn að eiga mjög góðan leik áður en hann meiddist, skoraði 18 stig og hitt úr 8 af 13 skotum sínum. Tony Parker er orðinn 34 ára gamall en hann hefur unnið fjóra NBA-titla með San Antonio Spurs eða 2003, 2005, 2007 og 2014. Parker skrifaði undir nýjan þriggja ára samning árið 2014 en hann fær 15,4 milljónir dollara fyrir næsta tímabil sem er það síðasta í þessum samningi.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira