Golden State með sópinn á lofti og gríska fríkið setti persónulegt met | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2017 07:00 Steph Curry var upp á sitt allra besta í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors er komið í undanúrslit vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að sópa Portland Trail Blazers auðveldlega í sumarfrí. Warriors, sem voru án þjálfara síns Steve Kerr í leiknum í nótt, unnu sannfærandi sigur á útivelli, 128-103, en þeir nánast löbbuðu í gegnum Portland alla seríuna. Steph Curry var magnaður í fjórða leik liðanna í nótt en hann skoraði 37 stig, tók sjö fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hann hitti úr sjö af ellefu þriggja stiga skotum sínum og sex af sjö vítaskotum. Draymond Green kom næstur með 21 stig en Kevin Durant skoraði tíu stig á þeim 20 mínútum sem hann spilaði. Durant er að koma til baka eftir að meiðast í leik eitt. Damian Lillard skoraði 34 stig fyrir Portland sem hefur lokið keppni á tímabilinu. Toronto Raptors komst í 3-2 í einvígi sínu á móti Milwaukee Bucks en fimmti leikur liðanna fór fram í Kanada í nótt. Lokatölur þar 118-103. Norman Powell skoraði 25 stig fyrir heimamenn en allt byrjunarlið Toronto skoraði yfir tíu stig. Giannis Antetokounmpo, eða gríska fríkið eins og hann er kallaður, átti stórleik fyrir Bucks. Hann skoraði 30 stig, tók níu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar en þessi magnaði leikmaður er frá Grikklandi og verður mótherja strákanna okkar á EM í sumar. Þá komst Atlanta Hawks í 3-2 í einvíginu á móti Washington Wizards í austrinu með 111-101 sigri á heimavelli í nótt. Sjö leikmenn Atlanta skoruðu yfir tíu stig en stigahæstur var Þjóðverjinn Dennis Schröder með 18 stig.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira