Svona voru mörkin þegar KR vann FH á Skírdag | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2017 13:45
KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta með því að vinna 2-1 sigur á Íslandsmeisturum FH í undanúrslitaleik liðanna á gervigrasi KR-inga. Óskar Örn Hauksson kom KR yfir á 31. mínútu en Kristján Flóki Finnbogason jafnaði fyrir FH-liðið aðeins mínútu síðar. Nýi Daninn í KR-liðinu, Tobias Thomsen , skoraði síðan sigurmark KR-liðsins, eftir aðeins fimm mínútna leik í seinni hálfleik. Tobias Thomsen hefur þar með skorað í tveimur fyrstu keppnisleikjum sínum fyrir KR en hann skoraði einnig mark í 4-1 sigri á Þór Akureyri í átta liða úrslitunum. Óskar Örn Hauksson var líka enn einu sinni á skotskónum hjá KR-liðinu en hann hefur nú skorað í fjórum síðustu leikjum liðsins í Lengjubikarnum og alls sjö mörk í sjö leikjum í keppninni í ár. Leikur KR og FH var sýndur beint á Stöð 2 Sport og má sjá mörkin úr leiknum í spilaranum hér fyrir ofan. KR mætir Grindavík í úrslitaleiknum sem fer fram klukkan 19.15 á Valsvelli á annan í páskum en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Fótbolti Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Körfubolti Porto lagði Val í Portúgal Handbolti „Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“ Sport Fleiri fréttir Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Sjá meira