Lífið

Falleg íslensk heimili: Risa einbýlishús í Keflavík með bíósal í kjallaranum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýr íslenskur þáttur hóf göngu sína á Stöð 2 fyrir um þremur vikum og heitir hann Falleg íslensk heimili.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni. Að þessu sinni heimsóttu sérfræðingarnir algjör höll í Keflavík þar sem lúxusinn er í fyrirrúmi. 

Hjónin sem búa í húsinu hafa lagt mikið í að endurhanna eignina og kemur það heldur betur vel út en meðal annars er bíósalur í kjallara hússins eins og sjá má í meðfylgjandi atriði úr þættinum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.