Fótbolti

Messi sneri aftur og skoraði tvö

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi er markahæstur á Spáni með 27 mörk.
Messi er markahæstur á Spáni með 27 mörk. vísir/getty
Lionel Messi sneri aftur í lið Barcelona eftir leikbann og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-0 sigri á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Með sigrinum skaust Barcelona á toppinn. Real Madrid getur endurheimt toppsætið með sigri á Leganés síðar í kvöld.

Börsungar kláruðu leikinn á átta mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik.

Luis Suárez kom Barcelona yfir á 25. mínútu eftir sendingu frá Messi sem skoraði annað markið þremur mínútum síðar. Messi skoraði svo sitt annað mark og þriðja mark Barcelona á 33. mínútu.

Fleiri urðu mörkin ekki og öruggur 3-0 sigur Barcelona staðreynd. Vitolo, leikmaður Sevilla, var rekinn af velli í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×