Lífið

Heimsókn í heild sinni: Steindi grillaði fyrir vanþakklátan Sindra og bauð honum í Playstation

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinþór Hróar Steinþórsson bauð sjónvarpsmanninum Sindra Sindrasyni í heimsókn á dögunum og sýndi honum smekklega íbúð sem hann býr í Mosfellsbænum.

Fjallað var um heimili þeirra í síðasta Heimsóknarþætti á Stöð 2 en hann fór í loftið í gærkvöldi.

„Konan mín var brjáluð þegar ég bauð ykkur hingað og þetta hefur verið algjör vesen síðustu fjóra daga. Það hefur samt aldrei verið svona hreint hérna,“ segir Steindi.

Steindi býr ásamt konu og barni á æskuslóðunum í Mosó.

„Konan mín elskar flamíngófugla og þeir eru þemað í skreytingum heimilisins,“ segir Steinþór en veggurinn fyrir aftan hjónarúmið er veggfóðra með bleikum flamíngófuglum.

Steindi og Sigrún eru með nokkur kvikmyndaplagggöt inni á heimilinu og er eitt af því úr kvikmyndinni Billy Madison með Adam Sandler. Steindi segir að myndin hafi í raun mótað hann sem grínista.

Steindi gekk með Sindra um alla íbúð og þeir félagarnir náðu í raun að slaka einstaklega vel á saman. Hann grillaði meðal annars fyrir hann pulsu og var Sindri kannski ekkert sérstaklega spenntur fyrir því. Steindi fer með eitt af aðalhlutverkunum í Asíska drauminum sem hefst á Stöð 2 á föstudagskvöldið. 

Hér að ofan má sjá þáttinn frá því í gærkvöldi í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.