Skoðun

Förum varlega

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ríkisstjórnin kynnti á sunnudag síðasta áfangann í áætlun um losun fjármagnshafta. Fulla losun hafta á einstaklinga, fyrirtæki og lífeyrissjóði.

Með breytingum á reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál sem taka gildi í dag lýkur vegferð sem hófst í nóvember 2008 þegar höftum var komið á í þeim tilgangi að verja lífskjör almennings. Að vísu stendur eftir heimildin sem Alþingi lögfesti 27. nóvember 2008 enda verða ýmsar takmarkanir á fjármagnshreyfingum með það fyrir augum að verja fjármálastöðugleika í landinu. Svo sem ýmsar takmarkanir á innflæði til að hafa taumhald á vaxtamunarviðskiptum.

Venjulegt launafólk sem hefur tekjur í íslenskum krónum mun ekki finna fyrir breytingunni enda var meginþorri almennings laus undan höftum um síðustu áramót þegar heimildir til fjármagnshreyfinga í erlendum gjaldeyri voru rýmkaðar upp að 100 milljónum króna. Hins vegar er afnám hafta risavaxið skref fyrir lífeyrissjóði sem þurfa ekki lengur að reiða sig á undanþágur eða rýmkaðar heimildir til fjárfestinga. Lífeyrissjóðirnir geta nú kerfisbundið farið að byggja upp eignasöfn sín erlendis enda hefur eignahlutfall þeirra í gjaldeyri verið of lágt. Stærstur hluti neyslu lífeyrisþega framtíðarinnar er í formi innflutnings á vöru og þjónustu. Æskilegt væri að hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóða væri að lágmarki 50 prósent en það hefur verið 22-23 prósent. Fullt afnám hafta er því mikilvægt og jákvætt skref fyrir almenning í landinu, skjólstæðinga lífeyriskerfisins.

Það er óhætt að taka undir með forsætisráðherra að góðar aðstæður séu til afnáms hafta núna. Það er mikill uppgangur í efnahagslífinu sem byggist á traustum stoðum verðmætasköpunar í ferðaþjónustu og sjávarútvegi en ekki lántökum í útlöndum líkt og í síðasta góðæri. Greiðslujafnaðarvandi þjóðarbúsins hefur verið leystur. Þá er Ísland ekki lengur í hópi skuldara í útlöndum eftir að hrein erlend staða þjóðarbúsins varð jákvæð á síðasta ári í fyrsta skipti frá því mælingar hófust eftir seinna stríð. Með því er Ísland orðið lánardrottinn erlendis og komið í hóp með ríkjum eins og Austurríki, Sviss og Noregi.

Vandi fylgir vegsemd hverri og fullt afnám hafta gerir miklar kröfur til okkar sem þjóðar. Í fyrsta lagi þarf að tryggja að bankarnir geti ekki farið að vaxa á ný í útlöndum í skjóli gjaldeyrisforðans sem í lok febrúar var 809 milljarðar króna. Við megum ekki endurtaka mistökin frá árunum 2003-2008. Best væri ef bankarnir væru skattlagðir og þeir látnir greiða kostnaðinn við rekstur gjaldeyrisforðans því þeir njóta góðs af honum þar sem Seðlabankinn er lánveitandi til þrautavara. Slíkt þarf að koma til framkvæmda áður en ríkið selur hlut sinn í Íslandsbanka og Landsbankanum. Seðlabankinn fékk sérstök þjóðhagsvarúðartæki til að beita eftir afnám hafta. Það er mikilvægt að Seðlabankinn standi vaktina og beiti þessum valdheimildum af festu með það fyrir augum að verja lífskjör almennings. Við þurfum að fara varlega og læra af mistökum fortíðar.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×