Fótbolti

Hvorki Ronaldo né Bale með Real Madrid í dag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo og Bale hafa skorað samtals 25 deildarmörk í vetur.
Ronaldo og Bale hafa skorað samtals 25 deildarmörk í vetur. vísir/getty
Real Madrid verður án bæði Cristianos Ronaldo og Gareths Bale þegar liðið sækir Eibar heim í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Bale fékk tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í 3-3 jafnteflinu við Las Palmas í síðustu umferð.

Ronaldo er aftur á móti meiddur en hann æfði ekki með Real Madrid í gær.

Þá er þriðji framherjinn, Álvaro Morata, í leikbanni.

Real Madrid getur komist á topp deildarinnar með sigri í leiknum á eftir. Madrídingar eru með 56 stig í 2. sæti, einu stigi á eftir toppliði Barcelona sem mætir Celta Vigo í kvöld. Real Madrid á þó leik til góða á Barcelona.

Leikur Eibar og Real Madrid hefst klukkan 15:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD.


Tengdar fréttir

Stórsigur Barcelona setur pressu á Real Madrid

Barcelona vann stórsigur á Sporting Gijón í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Börsungar fara því í toppsætið um stundarsakir en Real Madrid gæti hirt það af þeim á nýjan leik síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×