Fótbolti

Sverrir Ingi og félagar misstu af tækifærinu til að komast upp úr fallsæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sverrir Ingi var á sínum stað í vörn Granada.
Sverrir Ingi var á sínum stað í vörn Granada. vísir/getty
Sverrir Ingi Ingason og félagar í spænska úrvalsdeildarliðinu Granada misstu af tækifæri til að komast upp úr fallsæti þegar þeir töpuðu 1-0 fyrir Leganés á útivelli í dag.

Granada vann góðan sigur á Alavés í síðustu umferð og hefði með sigri í dag komist upp úr fallsæti.

Sverrir lék allan leikinn í miðri vörn Granada.

Liðið átti undir högg að sækja í leiknum í dag og átti aðeins eitt skot að marki Leganés.

Eina mark leiksins skoraði Darwin Machís eftir skyndisókn sjö mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×