NBA: Ástleysið háði ekki LeBron James og félögum á Valentínusardaginn | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2017 07:15
Cleveland Cavaliers vann sigur á Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þrátt fyrir að vera án eins af mönnunum sem voru valdir í Stjörnuleikinn sem fram fer um næstu helgi. Vandræðagemlingurinn DeMarcus Cousins sýndi mátt sinn gegn Lakers og Chicago Bulls er allt annað og betra lið með Jimmy Butler innanborðs.LeBron James var með 25 stig, 14 stoðsendingar og 8 fráköst þegar Cleveland Cavaliers vann 116-108 útisigur á Minnesota Timberwolves. Kevin Love verður ekki með Cleveland Cavaliers næstu vikurnar vegna hnémeiðsla. Channing Frye kom inn í byrjunarliðið fyrir hann og endaði með 21 stig og 10 fráköst. Kyre Irving skoraði 25 stig og gaf 7 stoðsendingar og Tristan Thompson var með 14 stig og 11 fráköst. Nýi maðurinn Derrick Williams kom síðan með 13 stig inn af bekknum. Cleveland fékk Kevin Love í skiptum fyrir Andrew Wiggins og Wiggins var með 41 stig á móti liðinu sem valdi hann í nýliðavalinu en vildi ekki nota hann. Karl-Anthony Towns skoraði síðan 26 stig. Ricky Rubio gaf 16 stoðsendingar og tók 8 fráköst en skoraði bara 5 stig.Doug McDermott var með 20 stig þegar Chicago Bulls vann 105-94 sigur á Toronto Raptors. Jimmy Butler kom aftur inn í Chicago liðið eftir meiðsli og það munaði svo sannarlega um 19 stig og 12 stoðsendingar frá honum. Þetta var ellefti sigur Chicago í röð á móti Toronto en Raptors hefur ekki fagnað sigri í leikjum liðanna síðan 31. desember 2013. Kyle Lowry skoraði 22 stig fyrir Toronto Raptors og DeMar DeRozan var með 18 stig. DeRozan var tíu stigum undir meðaltali sínu og var síðan hent út úr húsi á lokamínútu leiksins.DeMarcus Cousins skoraði 40 stig og tók 12 fráköst þegar Sacramento Kings vann 97-96 útisigur á Los Angeles Lakers. Lakers-liðið vann upp þrettán stiga mun í fjórða leikhlutanum en náði ekki að stoppa Cousins sem skoraði tíu síðustu stig síns liðs. Lou Williams kom með 29 stig inn af bekknum fyrir Lakers en klikkaði á lokaskoti leiksins sem hefði tryggt liði hans sigur.Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Los Angeles Lakers - Sacramento Kings 96-97 Chicago Bulls - Toronto Raptors 105-94 Minnesota Timberwolves - Cleveland Cavaliers 108-116
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira