Körfubolti

Stóra Birna hefur farið á kostum í vetur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dominos-körfuboltakvöld var á dagskrá Stöðvar 2 Sport á föstudagskvöldið og var þar rætt töluvert um kvennakörfuboltann.

Carmen Tyson-Thompson, leikmaður Njarðvíkur, er allt í öllu hjá liðinu og það er bara einfaldlega ekki nóg. Hinar stelpurnar þurfa að stíga upp að mati sérfræðingana.

Birna Valgerður Benónýsdóttir, 16 ára leikmaður Keflavíkur, hefur einfaldlega farið á kostum og hefur í raun allt sem góður körfuboltamaður þarf á að halda.

Hér að ofan á sjá umræðuna um kvennaboltann úr Körfuboltakvöldinu frá því á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×