Valsmenn í úrslitaleikinn þriðja árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2017 21:07 Haukur Páll Sigurðsson skoraði úr síðustu spyrnu Valsmanna. Vísir/Vilhelm
Valsmenn komust í kvöld í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu eftir 5-3 sigur á Víkingum í vítaspyrnukeppni í Egilshöllinni. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli en Valsmenn nýttu öll fimm vítin sín í vítaspyrnukeppninni og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum þriðja árið í röð. Eini maðurinn sem klikkaði á víti í vítaspyrnukeppninni var Víkingurinn Ívr Örn Jónsson sem skaut í stöngina. Víkingar fengu bara að taka fjögur víti því úrslitin voru ráðin fyrir lokaspyrnu þeirra. Guðjón Pétur Lýðsson, Sindri Björnsson, Einar Karl Ingvarsson og Sveinn Aron Guðjohnsen skoruðu úr fjórum fyrstu spyrnum Valsmanna og það var síðan fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson sem skoraði úr síðustu spyrnunni og gulltryggði sigurinn. Valsmenn voru manni færri í 35 mínútur en náðu ekki að skora sigurmark þrátt fyrir að hafa sótt stíft undir lok leiksins. Ragnar Bragi Sveinsson fékk sitt annað gula spjald á 55. mínútu og þar með rautt spjald. Víkingar voru líklegri til að skora í fyrri hálfleiknum en eftir að þeir urðu manni færri tóku Valsmenn völdin á vellinum. Valsmenn hafa spilað til úrslita við núverandi Reykjavíkurmeistara Leikni síðustu tvö ár en fá nýja mótherja í ár. Það kemur síðan í ljós seinna í kvöld hverjir mæta Valsmönnum í úrslitaleiknum á mánudaginn kemur en þá fer fram undanúrslitaleikur Fjölnis og KR á sama stað. Upplýsingar um vítaspyrnukeppnina er fengin úr textalýsingu vefsíðunnar fótbolti.net.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti „Brjálæðisleg orka“ Hákonar og einstakt samband við David Fótbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti Serena Williams orðin eigandi fyrsta kanadíska WNBA-liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira