Fótbolti

Fullkomin helgi fyrir Real Madrid eftir öruggan sigur

Casemiro ber boltann upp í leiknum í kvöld.
Casemiro ber boltann upp í leiknum í kvöld. vísir/getty
Real Madrid nýtti sér mistök andstæðinga sinna og bætti við forskot sitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 3-0 sigri á Real Sociedad á heimavelli.

Madrídingar eru núna með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar ásamt því að eiga leik til góða.

Börsungar, Sevilla og Atletico Madrid misstigu sig öll í dag og vissu lærisveinar Zinedine Zidane því alveg hvað sigur í dag myndi þýða.

Mateo Kovacic kom Real Madrid yfir á 38. mínútu en Cristiano Ronaldo var fljótur að bæta við forskotið með öðru marki Real Madrid á 51. mínútu leiksins.

Inigo Martinez, varnarmaður Real Sociedad, sá rautt spjald í seinni hálfleik og var það því aðeins formsatriði fyrir Madrídinga að klára leikinn.

Bætti Alvaro Morata við marki á 82. mínútu en það reyndist vera síðasta mark leiksins.

Real Madrid er því komið með gott forskot á toppi deildarinnar ásamt því að eiga leik til góða.

Strákarnir hans Zidane virðast vera vaknaðir á ný eftir óvænta tvo tapleiki í röð á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×