Lífið

Myndir frá ferðamönnum gefa vísbendingar um stórt hlutverk Íslands í Game of Thrones

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jon Snow er á Íslandi.
Jon Snow er á Íslandi. Mynd/Getty/Kearstin Peterson
Leikarnir Kit Harrington (Jon Snow) og og Ian Glen (Jorah Mormont) eru báðir staddir hér á landi við tökur á sjöundu þáttaröð Game of Thrones. Tökur hafa farið fram á Svínafellsjökli og við Jökulsárlón en margt virðist benda til þess að Ísland muni leika stórt hlutverk í næstu þáttaröð þáttanna geysivinsælu.

Í síðustu viku var greint frá því að tökulið þáttanna væri mætt til Íslands en til stendur að taka upp á mismunandi stöðum á Íslandi til loka næstu viku. Ferðamenn hafa rekist á tökuliðið að störfum og birt myndir af því á samfélagsmiðlum.

Rétt er að vara lesendur við því að hér fyrir neðan verður fjallað um næstu þáttaröð af Game of Thrones. Þeir sem ekki hafa áhuga á að vita um meira um mögulega framvindu þáttanna ættu ekki að lesa lengra.

Kearstin Patterson, ferðamaður á ferð hér á landi, náði þessum myndum sem sjá má hér að ofan. Ef vel er að gáð má sjá Kit Harrington í fullum skrúða á Svínafellsjökli ásamt fríðu föruneyti.

Ísland hefur áður verið notað til að tákna landið handan Veggjarins í Westeros auk þess sem myndir frá Íslandi hafa verið notaðar í bakgrunna í sjöttu þáttaröð.

Reikna má með að Ísland muni leika stórt hlutverk í þáttaröðinni sé horft til þeirra leikara sem eru nú staddir hér á landi við tökur en auk Harrington og Glen eru Joe Dempsie sem leikur Gendry og Paul Kaye sem leikur Thoros af Mýr einnig við tökur á Íslandi.

Að mati Watchers on The Wall vekur einnig athygli að Alan Taylor sé sá sem stýrir tökum á Íslandi. Hann mun leikstýra þætti sex í sjöundu þáttaröðinni sem mun vera næstsíðasti þátturinn að þessu sinni enda sjöunda þáttaröðin styttri en aðrar.

Aðdáendur Game of Thrones þekkja það líklega vel að næstsíðustu þættir hverjar þáttaraðar eru yfirleitt afar stórir og mikilvægir. Í sjöttu þáttaröð var afar mikill bardagi á milli Jon Snow og Ramsey Bolton og í þriðju þáttaröð fjallaði næstsíðasti þátturinn um rauða brúðkaupið þar sem hálf Stark-fjölskyldan var þurrkuð út.

Leiða má því líkur að því að Jon Snow, Jorah Mormont og föruneyti verði á ferð um landið handan Veggjarins og búast má við miklu miðað við að þetta muni verði sýnt í næstsíðasta þætti þáttaraðarinnar.

Tökur munu standa yfir hér á landi út vikuna en þáttaröðin verður frumsýnd síðar á árinu en hér að neðan má sjá fleiri myndir frá tökunum.

Þetta er í fimmta skipti sem tökulið Game of Thrones kemur til landsins. Árið 2011 fóru einar umfangsmestu tökur fyrir þáttinn hér á landi fram en þá fékk fréttastofa að fylgjast með eins og sést í innslaginu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.