Skoðun

Framlag Farfugla

Dóra Magnúsdóttir skrifar
Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, hafa útnefnt 2017 sem Alþjóðlegt ár sjálfbærrar ferðaþjónustu (International Year of Sustainable Tourism for Development). Það eru góðar fréttir fyrir íslenska ferðaþjónustu sem þarf á aðferðum sjálfbærrar þróunar að halda sem og nýjum hugsunarhætti eftir gríðarlegan vöxt á umliðnum árum.

Rannsóknir styðja að hægt er að hafa meiri áhrif á hegðan fólks þegar það ferðast heldur en þegar það er í daglegri rútínu. Fólk er opnara fyrir nýjum hughrifum og vill mögulega breyta sínu daglega mynstri í þágu umhverfisjónarmiða. Áhrifamáttur fólks í ferðaþjónustu er því verulegur, og mikilvægt að starfsfólk í greininni sé meðvitað um mátt sinn til að efla sjálfbærni og ábyrga ferðahegðun með ráðgjöf og góðri fyrirmynd.

Það er því engin tilviljun að SÞ völdu ferðaþjónustu til að vekja athygli á sjálfbærri þróun í heiminum. Ferðaþjónusta er afar mikilvæg fyrir efnahag jarðarbúa; afar mörg störf eru innan greinarinnar og það eru miklir möguleikar á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með breyttri ferðahegðun. Að auki getur ferðaþjónustan stuðlað að verndun fjölbreytts lífríkis og ólíkrar samfélagsgerðar, menningar og hefða. Eitt mikilvægasta framlag ferðaþjónustunnar er aukinn skilningur milli menningarsvæða sem getur stuðlað að friði og sátt.

Nýlega var stigið mikilvægt skref hérlendis þegar 260 fyrirtæki í ferðaþjónustu skrifuðu undir samning um ábyrga ferðaþjónustu, verkefni sem leitt er af Festu og Íslenska ferðaklasanum. Þó svo að ábyrg og sjálfbær ferðaþjónusta sé ekki sami hluturinn, getur sú ábyrga leitt til sjálfbærrar þróunar sé rétt á spöðunum haldið. Farfuglar, samtök sem stofnuð voru árið 1939 og starfa ekki í hagnaðarskyni, skrifuðu undir samninginn um ábyrga ferðaþjónustu. Farfuglar tilheyra Hostelling International, alþjóðasamtökum Farfuglaheimila í 89 löndum, sem mörg munu vinna að verkefnum tengdum sjálfbærni á árinu. Farfuglar lögðu fram stefnu í lok síðasta árs, sem byggir á sjálfbærri þróun rekstrarins og hafa mikilvæg skref nú þegar verið stigin; svo sem samningur við starfsmenn sem hvetur til notkunar á samgöngum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, skógrækt til kolefnisjöfnunar, rík áhersla á hægari ferðamáta (slow-travel) og notkun á hráefni sem framleitt er í nærumhverfi. Að auki eru fjölmörg önnur verkefni í þróun fyrir á því alþjóðlega og spennandi sjálfbærniári sem framundan er.

https://skemman.is/stream/get/1946/23656/54071/1/MS_Emilia_Prodea.pdfhttp://www.tourism4development2017.org/

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×