Joel Embiid náði því í nótt sem bara Allen Iverson hefur afrekað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2017 16:45 Joel Embiid. Vísir/AP
Joel Embiid, nýliði Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á sínu fyrsta ári í deildinni. Þjálfararteymi Philadelphia 76ers heldur aftur af stráknum með því að leyfa honum ekki að spila nema ákveðið magn af mínútum í hverjum leik. Meiðslasaga Embiid er þannig að menn standast allar freistingar og spara sinn besta leikmann. Joel Embiid var valinn í nýliðavalinu 2014 en missti af tveimur fyrstu tímabilum sínum vegna meiðsla. Þjálfarar 76ers passa því upp á að álagið verði ekki of mikið og er strákurinn því ekki að spila nema 25,4 mínútur að meðaltali í leik í vetur. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að Joel Embiid er kominn í hóp með Allen Iverson. Þeir tveir eru einu nýliðarnir í sögu Philadelphia 76ers sem hafa skorað yfir tuttugu stig í tíu leikjum í röð. Joel Embiid náði tíunda tuttugu stiga leiknum í röð þegar hann skoraði 26 stig á 27 mínútum í sigri á móti Toronto Raptors. Það sem meira er að Joel Embiid hefur aldrei spilað meira en 30 mínútur í þessum tíu leikjum og Philadelphia 76ers liðið hefur unnið sjö þeirra. Joel Embiid er með 19,9 stig og 7,8 fráköst að meðaltali á 25,4 mínútum og er síðan einnig með 2,4 varin skot og 2,0 stoðsendingar að meðaltali. Þegar þessar tölur eru uppfærðar á „eðlilegan“ leiktíma (36 mínútur í leik) fyrir unga NBA-stórstjörnu þá væri Embiid með 28,2 stig, 11,0 fráköst, 3,4 varin skot og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í leik.Joel Embiid is the 2nd rookie in @Sixers history to score 20 pts in 10 straight gms. Allen Iverson had 11 straight in 1996-97(@EliasSports) pic.twitter.com/ZGEsDWkWZH— ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) January 19, 2017
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira