ÍBV lyfti sér frá botnbaráttunni með sigri | Auðvelt hjá Haukum gegn ÍBV 2 3. desember 2016 18:49 Theodór Sigurbjörnsson, leikmaður ÍBV var með þrjú mörk í dag. vísir/vilhelm
Eyjamenn unnu nauman 22-21 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í dag en með sigrinum er ÍBV komið með 14 stig og nær aðeins að aðgreina sig frá liðunum sem berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Stjarnan sem ekki hafði unnið leik í tæpa tvo mánuði var að eltast við ÍBV allan leikinn en Eyjamenn leiddu í hálfleik 15-11 í Garðabænum. Garðbæingum tókst að saxa á forskotið og urðu lokamínúturnar spennandi fyrir vikið en það voru Eyjamenn sem fögnuðu að lokum sigrinum. Sigurbergur Sveinsson, Kári Kristján Kristjánsson og Grétar Þór Eyþórsson voru markahæstir í liði ÍBV með 4 mörk hver en Ólafur Gústafsson og Ari Magnús Þorgeirsson voru atkvæðamestir í liði Stjörnunnar með fimm mörk. Fyrr í dag fór fram einn leikur í Coca Cola bikar karla en þar áttust við ÍBV 2 og Haukar og fóru Íslandsmeistararnir með öruggan sigur af hólmi 38-20 eftir að hafa leitt með tíu stigum í hálfleik. Brynjólfur Snær Brynjólfsson fór á kostum í Eyjum í dag fyrir Haukaliðið með 12 mörk en í liði ÍBV 2 voru Einar Gauti Ólafsson og Hallgrímur Júlíusson markahæstir með fimm mörk hvor.
Olís-deild karla Mest lesið Í beinni þegar tilkynnt var að hann væri rekinn Fótbolti Gáfu skít í yfirmann sem hreykti sér af þeirra afrekum Fótbolti Hélt hann væri laus við þessi mál Fótbolti Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Enski boltinn Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Handbolti Versta byrjun í sögu efstu deildar Fótbolti Forsetinn Eto‘o fær ekki að mæta á leiki þjóðar sinnar Fótbolti Daníel og Irma taka spennandi stökk: „Maður vill ekki lifa í eftirsjá eftir ferilinn“ Sport Brasilíski miðvörðurinn gríðarlega eftirsóttur Fótbolti Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Sjá meira