Sara Björk og félagar óheppnar í Meistaradeildardrættinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2016 13:00 Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar marki með félögum sínum í Wolfsburg. Vísir/Getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í þýska liðinu Wolfsburg höfðu ekki heppnina með sér þegar dregið var í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í dag. Wolfsburg mætir Evrópumeisturum Olympique Lyon frá Frakklandi og spilar fyrri leikinn á heimavelli. Þessi lið mættust einmitt í úrslitaleiknum í fyrra þar sem Olympique Lyon vann í vítaspyrnukeppni. VfL Wolfsburg vann Meistaradeildina 2013 og 2014 og Lyon vann Meistaradeildina 2011 og 2012 auk þess að vinna hana síðasta vor. Þessi tvö lið, sem mætast í átta liða úrslitunum, hafa því unnið Meistaradeildina samanlagt fimm sinnum á síðustu sex árum. Wolfsburg sló sænska liðið út samanlagt 8-1 í Íslendingaslag í sextán liða úrslitunum en Olympique Lyon vann samanlagt 17-0 á móti svissneska liðinu Zürich. Takist Wolfsburg-liðinu að slá út Lyon þá mætir liðið annaðhvort Fortuna Hjörring eða Manchester City í undanúrslitunum. Sænska liðið Rosengård, sem sló Breiðablik út í 32 liða úrslitum keppninnar mætir Barcelona í átta liða úrslitunum. Sara Björk getur ekki mætt sínum gömlu félögum frá Svíþjóð nema að bæði liðin komist alla leið í úrslitaleikinn.Átta liða úrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta 2016-17: Fortuna Hjörring - Manchester City Bayern München - Paris Saint-Germain Wolfsburg - Olympique Lyon Rosengård - FC Barcelona
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik lokið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Leik lokið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Í beinni: Tottenham - Nott. Forest | Gestirnir á góðum stað FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Leik lokið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Sjá meira