Bíó og sjónvarp

GRRM og HBO enn í viðræðum um aðra GOT þáttaröð

Samúel Karl Ólason skrifar
George R.R. Martin.
George R.R. Martin. Vísir/Getty
Viðræður standa enn yfir á milli George R.R. Martin og forsvarsmanna HBO um nýja þáttaröð upp úr bókum GRRM, A Song of Ice and Fire. Game of Thrones þáttaröðinni geysivinsælu mun ljúka árið 2018, en af nógu er að taka úr söguheimi GRRM.

Í nýlegu viðtalið við Entertainment Weekly sagði Casey Bloys, dagskrárstjóri HBO, að verið væri að ræða hugmyndir um hvað sjónvarpsþættirnir gætu fjallað um. Hann segir þó að viðræðurnar séu enn á frumstigi.

Þá er vert að taka fram að svo virðist sem að ekki sé búið að ákveða að fullu hve margir þættir verða í áttundu og síðustu þáttaröðinni. EW spurði Bloys hvort að fregnir af því að hún yrði átta þættir væru sannar, en hann svaraði á þá leið að ekkert lægi fyrir.

Næsta þáttaröð, sem sýnd verður næsta sumar, verður sjö þættir og talið var að sú áttunda yrði sex þættir.

Meðal þess sem undirrituðum þætti gaman að sjá í nýjum þáttum er uppreisn Robert Baratheon, konungsins sem dó í fyrstu þáttaröðinni. Þá væri einnig hægt að gera þætti um sigurför Aegon „The Conqueror“ Targaryen og systra hans Visenya og Rhaenys en þau lögðu Westeros undir sig og sameinuðu sex af konungsdæmunum sjö. 

GRRM hefur þó skapað risastóran söguheim þar sem nóg er af sögum til að gera skil í sjónvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.