Fótbolti

Forseti Barcelona hefur sína skoðun á muninum á ensku og spænsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Josep Bartomeu með nokkrum stjörnuleikmönnum Barcelona.
Josep Bartomeu með nokkrum stjörnuleikmönnum Barcelona. Vísir/Getty
Josep Bartomeu, forseti Barcelona, segir að bestu fótboltamenn heims spili allir í spænsku deildinni en að bestu þjálfarnir séu á Englandi.

„Spænska deildin er að leggja mikla vinnu í að auka hróður deildarinnar í fótboltaheiminum. Ég er samt mjög ánægður með stöðuna því bestu leikmenn heimsins spila í spænsku deildinni,“ sagði Josep Bartomeu í viðtali við The Daily Telegraph.

„Messi er sá besti. Að mínu mati er síðan Neymar númer tvö og Cristiano Ronaldo númer þrjú. Þetta þýðir að þrír bestu leikmenn heimsins spila í La Liga,“ sagði Bartomeu.

„Stjörnurnar hér á Spáni í dag eru sjálfir leikmennirnir en í ensku úrvalsdeildinni þá eru stjórarnir stjörnurnar en ekki leikmennirnir. Þessar deildir fara því mismunandi leiðir við að kynna sína deild fyrir heiminum,“ sagði Josep Bartomeu.

Það er margt til í því sem Josep Bartomeu segir í þessu viðtali enda eru skrifað og rætt um knattspyrnustjóra eins og Pep Guardiola, Jose Mourinho, Arsene Wenger, Jürgen Klopp og Antonio Conte.

Enska deildin hefur miklu meira upp úr sjónvarpssamningum sínum en kollegar þeirra á Spáni. Hinn 53 ára gamli Josep Bartomeu segir þá á Spáni reka sig á miklar vinsældir enska boltans út um allan heim.

„Enska úrvalsdeildin er að gera þetta hárrétt. Undanfarin ár hefur hvert félag í deildinni alltaf öðlast meiri og betri möguleika með meiri peningum fyrir sjónvarpsréttinn. Þeim er því að takast það að fá bæði fólk á völlinn sem og að selja deildina í sjónvarp,“ sagði Josep Bartomeu.

„Þetta er virðingavert en þegar kemur að sjálfum fótboltanum þá er besti fótboltinn spilaður á Spáni,“ sagði Bartomeu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×