Fótbolti

Aubameyang skilinn eftir upp í stúku

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aubameyang upp í stúku í gær.
Aubameyang upp í stúku í gær. vísir/getty
Mikla athygli vakti í gær að stærsta stjarna Borussia Dortmund, Pierre-Emerick Aubameyang, sat upp í stúku er Dortmund spilaði gegn Sporting Lisbon í Meistaradeildinni.

Rétt fyrir leik var Aubameyang hent út úr leikmannahópi liðsins. Það kom þó ekki að sök því Dortmund vann 1-0 og er búið að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit keppninnar.

„Þetta er innanhússmál og verður þannig áfram,“ sagði þjálfari Dortmund, Thomas Tuchel, og vildi ekkert gefa upp um hvort leikmaðurinn hefði brotið einhverjar agareglur.

Aubameyang var búinn að skora þrjú mörk í Meistaradeildinni og ellefu mörk í deildarkeppninni fram að leiknum í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×