Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Trainspotting 2

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér er komin fram stikla úr Trainspotting 2 sem er væntanleg í kvikmyndahús í febrúar á næsta ári.

Þar má sjá alla karakterana úr fyrstu myndinni, Renton, Spud, Sick Boy, Begbie og Diane, hittast á ný en búið er að uppfæra ræðu Rentons þannig að hún passi við hversdagslega hluti í dag

„Choose life, choose Facebook, Twitter, Instagram and hope that someone, somewhere cares.“

Irvine Welsh, handritshöfundur skáldsögunnar sem Trainspotting er byggð á, uppljóstraði nýverið að í þessari mynd flækjast aðalpersónurnar fjórar í heim kláms.

Stikluna má sjá hér fyrir neðan: 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×