Bíó og sjónvarp

Ryan Reynolds og Jake Gyllenhaal uppgötva óvinveitta lífveru

Birgir Olgeirsson skrifar
Jake Gyllenhaal.
Jake Gyllenhaal.
Þetta er stikla úr myndinni Life sem skartar þeim Jake Gyllenhaal og Ryan Reynolds í aðalhlutverkum.

Myndin segir frá geimförum sem uppgötva lífveru á mars sem reynist hins vegar allt annað en vinveitt.

Leikstjóri myndarinnar er Daniel Espinosa, sem á að baki myndirnar Safe House og Child 44, en með önnur hlutverk fara Rebecca FergusonHiroyuki Sanada og Olga Dihovicnaya.

Myndin verður frumsýnd í maí á næsta ári. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×