Er þetta það sem koma skal hjá Golden State Warriors í vetur? | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2016 10:45 Kevin Durant og Steph Curry. Vísir/Getty
NBA-tímabilið hefst í næstu viku og flestir NBA-áhugamenn bíða spenntir eftir því að sjá hvernig samvinna Kevin Durant og nýju liðsfélaga hans í Golden State Warriors muni ganga. Golden State Warriors setti nýtt met í sigurleikjum á síðasta tímabili en missti af titlinum eftir tap í oddaleik á heimavelli á móti Cleveland Cavaliers. Liðið bætti síðan við sig einum besta leikmanni NBA-deildarinnar í sumar þegar Kevin Durant ákvað að yfirgefa Oklahoma City Thunders og semja við Warriors. Kevin Durant er byrjaður að spila með Warriors-liðinu og þó að tímabilið sé ekki byrjað eru sérfræðingar þó farnir að lesa ýmislegt út úr leik liðsins. Umræddir sérfræðingar geta verið jákvæðir eftir leik næturinnar. Golden State Warriors fór þá frekar létt með lið Los Angeles Lakers í undirbúningsleik þar sem nýja þrennning hjá Golden State sýndi styrk sinn. Steph Curry, Kevin Durant og Klay Thompson skoruðu nefnilega 78 stig samanlagt í leiknum og voru auk þess með 17 stoðsendingar saman. Steph Curry var með 32 stig og 5 stoðsendingar á 31 mínútu, Kevin Durant skoraði 27 stig og gaf 4 stoðsendingar á 31 mínútu og Klay Thompson bætti við 19 stigum og 8 stoðsendingum á 32 mínútum. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd frá leiknum í nótt en í neðra myndbandinu eru tvö hraðaupphlaup Golden State liðsins þar sem Steph Curry, Kevin Durant og Klay Thompson komu allir við sögu. Nú er bara stóra spurningin: Er þetta það sem koma skal hjá Golden State Warriors í vetur? Fyrsti leikur Golden State Warriors verður á heimavelli á móti San Antonio Spurs 25. október næstkomandi.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira