NBA: LeBron James með þrennu í fyrsta leik en Golden State skíttapaði | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2016 07:00
NBA-meistarar Cleveland Cavaliers byrjuðu titilvörn sína vel í nótt en silfurlið Golden State Warriors steinlá aftur á móti í fyrsta leik sínum með Kevin Durant. Kawhi Leonard setti nýtt persónulegt met með því að skora 35 stig í 129-100 stórsigri San Antonio Spurs á Golden State Warriors. Golden State liðið vann 24 fyrstu leiki sína á síðasta tímabili en fékk nú stóran skell á heimavelli. Leonard, sem var kominn með 31 stig eftir fyrstu þrjá leikhlutana, var frábær í leiknum en LaMarcus Aldridge var engu síðri með 26 stig og 14 fráköst. Kevin Durant skoraði 27 stig og tók 10 fráköst í fyrsta deildarleik sínum með Golden State Warriors en Stephen Curry var með 26 stig. Curry hitti þó aðeins úr 3 af 10 þriggja stiga skotum sínum. Draymond Green var með 18 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar en Klay Thompson skoraði aðeins 11 stig og klikkaði af 8 af 13 skotum sínum.LeBron James bauð upp á þrennu í kjölfarið á því að hann fékk NBA-hringinn sinn með félögum sínum í meistaraliði Cleveland Cavaliers. James var með 19 stig, 11 fráköst og 14 stoðsendingar í 117-88 stórsigri á New York Knicks. Hinir stjórnuleikmenn Cleveland-liðsins voru einnig að spila vel því Kyrie Irving skoraði 29 stig og Kevin Love bætti við 23 stigum og 12 fráköstum. Carmelo Anthony var stighæstur hjá New York með 19 stig, Derrick Rose skoraði 17 stig og Kristaps Porzingis var með 16 stig.Damian Lillard var með 39 stig þegar Portland Trail Blazers vann 113-104 sigur á Utah Jazz. CJ McCollum bætti við 29 stigum en Joe Johnson var stigahæstur hjá Utah Jazz liðinu með 29 stig.Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Cleveland Cavaliers - New York Knicks 117-88 Portland Trail Blazers - Utah Jazz 113-104 Golden State Warriors - San Antonio Spurs 100-129
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira