Fótbolti

Eitt mark dugði Barcelona gegn Granada

Rafinha fagnar markinu.
Rafinha fagnar markinu. vísir/getty
Barcelona er tveimur stigum á eftir Real Madrid þegar tíu umferðum er lokið af spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Barcelona vann sinn leik í dag.

Sigurmark Barcelona gegn Granada kom úr óvæntri átt því það var enginn annar en Rafinha sem skoraði sigurmarkið á 49. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 1-0.

Barcelona er í öðru sætinu með 22 stig, stigi á undan Atletico Madrid og Sevilla, en Real Madrid er á toppnum með 24 stig.

Granada er hins vegar á botninum með þrjú stig eftir þrjú jafntefli, en það kom mörgum á óvart að Barcelona hefði ekki unnið leikinn stærra en raunin varð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×