Heimir: Hannes er klár Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 8. október 2016 11:47 Heimir Hallgrímsson vísir/ernir
Heimir Hallgrímsson þjálfari íslenska fótboltalandsliðsins staðfesti á blaðamannafundi í morgun að Hannes Þór Halldórsson er klár í slaginn gegn Tyrkjum eftir meiðsli. Hannes missti af 3-2 sigrinum gegn Finnlandi vegna meiðsla líkt og Jón Daði Böðvarsson og Emil Hallfreðsson. Meiri líkur eru á að Jón Daði verði með gegn Tyrkjum en Emil. „Hannes er 100% klár, Jón Daði er mjög líklegur og það er ólíklegast með Emil, við munum skoða hann í síðasta skiptið hér á eftir. Kannski á morgun,“ sagði Heimir. „Við vissum það fyrir þessa tvo leiki að Emil yrði tæpastur af þessum öllum þannig að það kemur okkur ekkert á óvart.“ Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands er í leikbanni gegn Tyrkjum en Emil hefur verið einn þeirra sem leikið hafa í stöðu landsliðsfyrirliðans í þau fáu skipti sem hann hefur misst af leikjum. Heimir vildi að sjálfsögðu ekkert gefa upp um hvernig hann mun stilla upp í fjarveru Arons en Ólafur Ingi Skúlason og Birkir Bjarnason gætu tekið stöðu hans. Verði það Birkir mun að öllum líkindum annað hvort Theódór Elmar Bjarnason eða Arnór Yngvi Traustason taka stöðu hans á kantinum. „Við erum að hugsa ansi margt. Auðvitað gefum við það ekki upp hér hvað við ætlum að gera. Við erum í okkar huga búnir að ákveða hvað við ætlum að gera,“ sagði Heimir varðandi liðsvalið.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Enski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Fleiri fréttir „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi Sjá meira