Skoðun

Kæra Ólöf Nordal innanríkisráðherra

Guðrún Sigurðardóttir skrifar
Til hamingju með gott gengi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ef vel gengur hjá flokknum í komandi alþingiskosningum er ekki ólíklegt að hann verði áfram í ríkisstjórn og þú jafnvel áfram innanríkisráðherra. Miðað við skoðanakannanir þá getur Sjálfstæðisflokkurinn og þar af leiðandi þú a.m.k. haft veruleg áhrif á stjórnmálaumræðu í landinu að loknum kosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn gerði þau grundvallarmistök að standa að stofnun embættis sérstaks saksóknara. Munt þú beita þér fyrir því að hefja skoðun á málsmeðferð manna sem sætt hafa rannsókn til margra ára og sæta enn vegna mála er tengjast bankahruninu? Finnst þér eðlilegt að menn sem hafa verið ofsóttir síðan 2009 og núna margir hverjir að afplána dóma, lifi enn í óvissu um það hversu marga dóma í viðbót þeir þurfi að afplána? Svona til að taka dæmi þá er einn af þessum mönnum nú að afplána þriggja ára dóm, hann bíður eftir meðferð Hæstaréttar vegna dóms sem féll í héraði á síðasta ári þar sem hann fékk tveggja ára viðbótardóm. Einnig bíður hann þess nú að aðalmeðferð hefjist í Héraðsdómi vegna ákæru frá því í mars og enn ríkir óvissa um hvort ákært verður í fleiri málum. Þetta eru að verða nokkuð mörg ár og miðað við hraða dómskerfisins fram að þessu á líf viðkomandi áfram eftir að vera gegnsýrt af þessu til fjölda ára í viðbót. Finnst þér þetta ásættanlegt?

Hefur aldrei hvarflað að þér í gegnum öll þessi ár að nú ættu sér stað nornaveiðar af verstu gerð og að tíminn muni leiða í ljós að brotið hafi verið illa á ríkisborgurum þessa lands? Enn það væri s.s. ekki í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld færu þá leið ofsókna gagnvart afmörkuðum hópi þjóðfélagsþegna sinna.

Kæra Ólöf hvarflar það að þér að mögulega gætu flóknari ástæður legið að baki bankahruninu en var á færi nokkurra manna að stýra? Hvarflar það að þér að bankahrunið hafi ef til vill haft lengri aðdraganda en nokkra mánuði? Hvarflar það að þér að fall á mörkuðum erlendis hafi haft eitthvað með það að gera? Hvarflar það að þér að þeir sem hafa verið ofsóttir og dæmdir nú hafi lagt sig alla fram við það að reyna að bjarga fjármálakerfinu? Hvarflar það að þér að aðrir innviðir samfélagsins hafi brugðist?

Finnst þér ekki undarlegt að refsingin beinist eingöngu að afmörkuðum hópi einstaklinga sem stóðu í eldlínunni rétt fyrir hrun?

Með von um skjót viðbrögð

 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×