Lífið

Einkaviðtal Fréttablaðsins: Hakk og spagettí uppáhaldsmatur Justin Bieber

Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
Justin Bieber kemur fram á tónleikum í Kórnum í Kópavogi í kvöld og annað kvöld.
Justin Bieber kemur fram á tónleikum í Kórnum í Kópavogi í kvöld og annað kvöld. vísir/getty
Hinn klassíski ítalski réttur, Spaghetti Bolognese, eða hakk og spagettí er uppáhaldsmatur poppstjörnunnar Justin Bieber. Þetta kemur fram í einkaviðtali Fréttablaðsins við tónlistarmanninn sem birtist í heild sinni í blaðinu á morgun.

Guðrún Jóna Stefánsdóttir blaðamaður Fréttablaðsins fékk tækifæri til að spyrja Bieber nokkurra spurninga og spurði hann meðal annars um hvað væri uppáhaldsmaturinn hans. Svarið var stutt og laggott: Spaghetti Bolognese.

Það er því bara spurning hvort að söngvarinn smakki Spaghetti Bolognese á meðan hann er hér á landi en eins og kunnugt er mun Bieber halda tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi. Þeir fyrri fara fram í kvöld og þeir seinni annað kvöld.

Búist er við að hátt í fjörutíu þúsund manns sæki tónleika Bieber hér á landi en strax í morgun voru æstir aðdáendur hans mættir til að bíða í röð fyrir framan Kórinn. Svæðið opnar þó ekki fyrr en klukkan 16 í dag og húsið opnar klukkan 17 en búist er við að Bieber sjálfur stigi á svið klukkan 20.30.

Í viðtali við Fréttablaðið segist Bieber vonast til þess að tónleikarnir verði í alla staði frábærir.

„Allir eiga að koma tilbúnir til að dansa og syngja og að skemmta sér æðislega,“ segir Bieber.

Hér að neðan má sjá uppskrift Evu Laufeyjar Kjaran að uppáhaldsmat Justin Bieber, Spaghetti Bolognese.

Spaghetti Bolognese með einföldu hvítlauksbrauði

1 msk. ólífuolía

100 g beikon

1 laukur

2 stilkar sellerí

2 hvítlauksrif

600 g nautahakk

salt og nýmalaður pipar

1 nautakjötsteningur + 2 dl soðið vatn

1 krukka niðursoðnir tómatar

3 lárviðarlauf

1 msk tómatpúrra

fersk basilíka

Handfylli fersk steinselja

Aðferð:



1. Hitið smá ólífuolíu á pönnu.

2. Skerið niður beikon í litla bita og steikið þar til það er stökkt. Skerið sellerí, lauk og pressið hvítlauk. Bætið sellerí og lauknum út á pönnuna og steikið, bætið hvítlauknum saman við í lokin.

3. Bætið hakkinu út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar.

4. Þegar hakkið er tilbúið þá bætið þið 1 krukku af pastasósu út á pönnuna ásamt nautasoði.

5. Setjið þrjú lárviðarlauf saman við en takið þau upp úr réttinum áður en þið berið hann fram.

6. Saxið niður ferska steinselju og basilíku, sáldrið yfir hakkið.

7. Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.

8. Berið fram með Parmesan osti og nóg af honum.

Einfalt hvítlauksbrauð

1 baguette brauð

ólífuolía

2 hvítlauksrif

1 dós sýrður rjómi

1 tsk dijon sinnep

salt og nýmalaður pipar

rifinn Mozzarella ostur

nýrifinn Parmesan ostur

steinselja

Aðferð:



1. Blandið saman sýrðum rjóma, pressuðum hvítlauk, ólífuolíu, salti og pipar í skál.

2. Skerið baguette brauðið eftir endilöngu og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið hvítlauksblöndunni yfir brauðsneiðarnar og sáldrið rifnum osti yfir.

3. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Saxið niður ferska steinselja og dreifið yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.