Neymar hættur sem fyrirliði en fékk sér nýtt húðflúr Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. ágúst 2016 14:05 Neymar er búinn að skila fyrirliðabandinu. vísir/getty
Neymar da Silva Santos Júnior, eða bara Neymar, er líklega vinsælasti maðurinn í Brasilíu eftir að hafa tryggt brasilíska fótboltalandsliðinu sitt fyrsta Ólympíugull í gær.Brassar báru þá sigurorð af Þýskalandi í vítaspyrnukeppni. Neymar skoraði glæsilegt mark með skoti beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik og skoraði svo úr síðustu spyrnu Brasilíu í vítakeppninni.Sjá einnig: Sjáðu glæsimark Neymars og vítakeppnina í heild sinni | Myndbönd Eftir leikinn í gær tilkynnti Neymar svo óvænt að hann væri hættur sem fyrirliði brasilíska landsliðsins. Neymar tók við fyrirliðabandinu af Thiago Silva eftir HM 2014 en hefur nú afsalað sér því. „Það var mér mikill heiður að vera fyrirliði en frá og með deginum í dag er ég hættur því. Ég mun koma skilaboðum til landsliðsþjálfarans [Tite] um að hann geti farið að leita að nýjum fyrirliða,“ sagði Neymar.Sjá einnig: Neymar: Hundrað prósent Jesús að þakka | Myndir Brasilíski snillingurinn skilaði ekki bara fyrirliðabandinu eftir leik heldur fékk hann sér einnig húðflúr með Ólympíuhringjunum fimm og orðunum „Rio 2016“ á handlegginn. Neymar er því kominn með varanlegt minnismerki um Ólympíugullið sem Brassar unnu loksins í gær.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Mögulega leikþáttur hjá Egyptum Handbolti Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Enski boltinn Hefur ekki mikla trú á CrossFit goðsögnunum frá Íslandi Sport „Ég spurði mömmu nú ekki hvað fór þeim á milli“ Handbolti Segir bronsverðlaun sín vera að breytast í gull Sport „Það er einhver ára yfir liðinu“ Handbolti HM í dag: Meiðsli í miðjum þætti og heyrnartólin lentu upp í sveit Handbolti Þjóðverjar í sárum eftir „Herning helvítið“ Handbolti „Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geðveiki“ Handbolti Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Fótbolti Fleiri fréttir Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Mannvirkjasjóður KSÍ fer næstu árin í uppbyggingu á Laugardalsvelli Sjáðu markaveislu Barcelona, Hákon búa til mark á Anfield og öll hin mörkin í gær Dortmund rak þjálfarann sinn eftir tapið í gær Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Magnaður endurkomusigur Atlético Madríd Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Monaco með mikilvægan sigur á Aston Villa Ótrúleg endurkoma Börsunga Torsóttur sigur toppliðsins Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? KSÍ boðar unga varnarmenn á séræfingar Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með landsliðið Víkingur spilar heimaleik sinn í Helsinki Telma mætt til skosks stórveldis Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Þróttur fær aðra úr Árbænum Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Sjá meira