Körfubolti

Helena og Pavel á tauginni í ökuferð með Kristjáni Einari | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Körfuboltafólkið Helena Sverrisdóttir og Pavel Ermolinskij skellti sér á rúntinn með Kristjáni Einari Kristjánssyni, fyrrverandi Formúlu 3 ökumanni og sérfræðingi Stöðvar 2 Sports um Formúlu 1, um daginn.

Um var að ræða svokallaða „Púlsáskorun Lexus“ þar sem Kristján keyrði hring með átta þekkta Íslendinga á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni í nýjum Lexus RC 300h. Og markmiðið var einfalt: að halda púlsinum sem lægstum hjá þessum einstaklingum.

Þau Helena og Pavel eru venjulega mjög svöl undir pressu á körfuboltavellinum en púlsinn fór ansi hátt hjá þeim á meðan þau sátu í hjá Kristjáni.

Þau komust þó bæði í heilu lagi í gegnum hringinn þótt taugarnar hafi verið þandar til hins ítrasta.

Myndband af þessari skemmtilegu Púlsáskorun má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×