Golden State í kjörstöðu | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 11. júní 2016 11:11 Strákarnir í Golden State voru í stuði í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors er einum sigri frá því að verða NBA-meistari í körfubolta eftir sigur á Cleveland Cavaliers, 108-97, í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi NBA í nótt. Cleveland var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þrátt fyrir að meistararnir frá því í fyrra, Golden State, hafi byrjað betur og leitt 29-28 eftir fyrsta leikhlutann. Öflugur annar leikhluti sá til þess að Cleveland leiddi í hálfleik 40-45. Í þriðja leikhlutanum reyndust Golden State sterkari. Þeir náðu aftur forystunni, en þeir leiddu með tveimur stigum þegar lokaleikhlutinn var flautaður á. Golden State breytti í stöðunni úr 81-81 í 93-84 og lögðu þannig grunninn að sigrinum, en að lokum varð munurinn ellefu stig, 108-97. Heimamenn í Cleveland náðu lítið að ógna Golden State undir lokin. Stephen Curry lék á alls oddi, en hann skoraði samtals 38 stig og Klay Thompson bætti við 25. Næstur kom Draymond Green með tólf stig, en Andre Iguodala gaf sjö stoðsendingar í liði meistaranna. Kyrie Irving skoraði 34 stig fyrir heimamenn í Cleveland, en LeBron James tók þrettán fráköst og gaf níu stoðsendingar. Hann skoraði 25 stig. Golden State getur tryggt sér titilinn á mánudag, en leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport/HD.Topp 5-næturinnar: Fallegt: Curry og Irving voru í banastuði í nótt:
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira