Bíó og sjónvarp

Cato er allur

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Burt Kwouk var helst í sjónvarpi síðustu árin á starfsævi sinni. Þar á meðal var hann þáttastjórnandi hina vinsælu Banzai á BBC.
Burt Kwouk var helst í sjónvarpi síðustu árin á starfsævi sinni. Þar á meðal var hann þáttastjórnandi hina vinsælu Banzai á BBC. Visir/Getty
Leikarinn Burt Kwouk sem lék Cato í eldri kvikmyndunum um Bleika Pardusinn er allur. Cato var aðstoðarmaður Inspector Clouseau sem leikinn var af Peter Sellers. Hans helsta innskot í myndunum voru afar spaugilegar bardagasenur þar sem lögregluforinginn klaufski hafði skipað honum að ráðast á sig þegar hann ætti sem minnst von á því.

Kwouk kom einnig fram í þremur James Bond myndum. Þá iðulega á móti Sean Connery en þó aldrei í sama hlutverki. Hann fór einnig með hlutverk í myndinni Empire of the Sun sem Steven Spielberg leikstýrði. Hann hætti að vinna fyrir um 6 árum síðan en síðustu 10 ár starfsferil síns lék hann aðallega í sjónvarpsþáttum.

Peter Sellers og Burt Kwouk kitluðu hláturtaugarnar á sjöunda og áttunda áratugnum í myndunum um Bleika pardusinn.Vísir
Var aðlaður eftir að hann hætti að leika

Burt Kwouk var breskur, fæddur í Machester, en var uppalin að hluta í Shanghai. Hann öðlaðist þann heiður að vera aðlaður af bretadrottningu árið 2011 eða ári eftir að hann hætti að leika. Kwouk náði 86 ára aldri.

Hér fyrir neðan má sjá eitt af betri atriðum þegar Cato ræðst óvænt á vinnuveitanda sinn Inspector Clouseau. Tekið úr myndinni The Pink Panther Strikes Again frá árinu 1976.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.