Matur

Æðislegar kotasælubollur

VISIR.IS/EVALAUFEY

Kotasælubollur

Hráefni 

  • 100 g brætt smjör
  • 4 dl nýmjólk
  • 1 bréf þurrger (12 g bréfið)
  • 1 msk hunang
  • 900 grömm plús aðeins meira hveiti
  • 1 tsk salt
  • 400 g kotasæla



    Aðferð:
  1. Bræðið smjör í potti, bætið mjólkinni, þurrgerinu og hunanginu saman við og hrærið vel saman.
  2. Hellið blöndunni í hrærivélaskál ásamt saltinu, kotasælunni og hveitinu.
  3. Hnoðið deigið í hrærivélinni í um það bil 8 mínútur. (Það tekur aðeins lengri tíma að gera það í höndunum)
  4. Stráið hveiti á borðflöt og hnoðið deigið í smá stund með höndunum og mótið eina stóra kúlu.
  5. Færið kúluna yfir í hreina skál og leggið viskastykki yfir skálina. Leyfið deiginu að hefast í rúmlega klukkustund eða þar deigið hefur tvöfaldast að stærð.
  6. Hitið ofninn í 200°C (blástur)
  7. Skiptið deiginu niður í jafn stóra bita og mótið bollurnar.
  8. Leggið bollurnar á pappírsklædda ofnplötu.
  9. Penslið bollurnar með eggi og sáldrið birkifræjum yfir.
  10. Bakið við 200°C í 15 mínútur.

    Ljúffengt pestó með sólþurrkuðum tómötum
  • 1 höfuð basilíka
  • 100 g ristaðar furuhnetur
  • 1 krukka sólþurrkaðir tómatar t.d. frá Sacla
  • 50 g parmesan ostur, ferskur
  • Salt og pipar, magn eftir smekk
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • 1 – 2 dl ólífuolía



    Aðferð:

Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Berið strax fram og njótið vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.