Þessir þrír hafa aldrei tapað saman í úrslitakeppni NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2016 22:00 Kevin Love, Kyrie Irving og LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James, Kyrie Irving og Kevin Love eru þrjár stærstu stjörnur Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni og hafa nú tekið því rólega eftir að Cleveland-liðið komst langfyrst áfram í þriðju umferð úrslitakeppninnar í ár. Cleveland Cavaliers sló bæði Detroit Pistons og Atlanta Hawks út úr úrslitakeppninni í ár án þess að tapa leik. Átta leikir og átta sigrar. Staðan var 2-1 fyrir Toronto Raptors á móti Miami Heat í hinu undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar þegar Cavaliers-liðið komst áfram. Toronto vann það einvígi á endanum í oddaleik (leik númer 7) og í kvöld er loksins komið að fyrsta leiknum hjá Cleveland Cavaliers og Toronto Raptors. Toronto Raptors er því búið að spila fjóra leiki síðan að Cleveland Cavaliers spilaði síðast. Þríreykið, James, Irving og Love, státar af rosalegri tölfræði í úrslitakeppni NBA þessi tvö tímabil sem þeir hafa spilað saman. Þessir þrír hafa nefnilega aldrei tapað í úrslitakeppni þegar allir eru með Cleveland Cavaliers. Átta leikir í úrslitakeppninni í ár bættust við þá fjóra sem þeir náðu að spila saman í fyrra. Kevin Love meiddist í fjórða leik í úrslitakeppninni í fyrra þegar Cleveland Cavaliers var að landa fjórða sigrinum í röð á Boston Celtics og um leið sæti í annarri umferð úrslitakeppninnar. LeBron James leiddi Cleveland-liðið alla leið í lokaúrslitin þrátt fyrir að vera án Kevin Love í undanúrslitum og úrslitum Austurdeildarinnar auk þess að missa Kyrie Irving út í tvo leiki í úrslitum Austurdeildarinnar og svo alveg út í fyrsta leik lokaúrslitanna á móti Golden State Warriors. Nú eru allir þrír heilir og hungraðir og nú er það undir leikmönnum Toronto Raptors að breyta fyrrnefndri tölfræði. Það búast flestir við því að Cleveland slái Toronto út og ef marka má samspil þeirra James, Irving og Love hingað til er ekki ólíklegt að einvígið endi 4-0.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira