Körfubolti

Sigrún að fara að spila oddaleik með fjórða félaginu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir. Vísir/Anton
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður í stóru hlutverki í kvöld þegar Grindavíkurstelpur heimsækja deildarmeistara Hauka á Ásvelli í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Domino´s deildar kvenna í körfubolta.

Grindavíkur vann tvo fyrstu leikina en hefur nú mistekist tvisvar í röð að senda Haukakonur í sumarfrí. Haukaliðið er enn á lífi eftir tvo sigurleikir í röð, stórsigur á heimavelli og svo nauman útisigur í síðasta leik.

Sigrún var með 20 stig í síðasta leik og hefur skorað 11,8 stig, tekið 6,5 fráköst og gefið 2,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum einvígisins.

Sigrún mun í kvöld ná þeim einstaka áfanga í sögu úrslitakeppni kvenna að spila oddaleik með sínu fjórða félagi en hún hefur áður spilað oddaleiki með Haukum, KR og Hamar.

Sigrún hefur fangað sigri í fjórum af sex oddaleikjum en einu töpin hafa komið í oddaleik um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Sigrún vann tvo af þessum oddaleikjum þegar hún spilaði með Haukum með þeim Helenu Sverrisdóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur sem er nú aftur komnar í leiðtogahlutverkin hjá Haukum.

Leikur Hauka og Grindavíkur fer fram í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og hefst klukkan 19.15 í kvöld en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3 og Stöð 2 Sport HD 3.

Oddaleikir Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur:

2006 með Haukum

- Undanúrslit á móti ÍS (91-77 sigur, 3 stig)

2007 með Haukum

- Undanúrslit á móti ÍS (81-59 sigur, 7 stig, 4 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolnir)

2008 með KR

- Undanúrslit á móti Grindavík (83-69 sigur, 23 stig, 14 fráköst, 4 stoðsendingar)

2009 með KR

- Sex liða úrslit á móti Grindavík (77-57 sigur, 12 stig, 10 fráköst, 3 stoðsendingar)

- Lokaúrslit á móti Haukum (64-69 tap, 13 stig, 10 fráköst)

2010 með Hamar

- Undanúrslit á móti Keflavík (93-81 sigur, 4 stig, 2 fráköst, 4 stoðsendingar)

- Lokaúrslit á móti KR (84-79 tap, 2 stig, 9 fráköst, 4 stoðsendingar)


Tengdar fréttir

Fagnar uppgangi uppeldisfélagsins

Á sama tíma og Grindavík og Haukar áttust við í Röstinni á föstudagskvöldið tryggði Skallagrímur sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í 40 ár, eftir sigur á KR.

Teljum okkur geta farið alla leið

Grindavíkurkonur komu mörgum á óvart með því að komast í 2-0 gegn Haukum. Síðustu tveir leikir hafa hins vegar ekki farið vel hjá þeim gulu og þeirra bíður því oddaleikur á Ásvöllum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×