Fótbolti

Söguleg stund á Etihad | Sjáðu markið hjá De Bruyne

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kevin De Bruyne fagnar marki sínu.
Kevin De Bruyne fagnar marki sínu. vísir/afp
Manchester City er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 1-0 sigur á Paris Saint-Germain á Etihad í kvöld.

Kevin de Bruyne skoraði eina mark leiksins með frábæru skoti á 76. mínútu en hann skoraði einnig í fyrri leiknum í Frakklandi sem lyktaði með 2-2 jafntefli.

Sergio Agüero skaut framhjá úr vítaspyrnu eftir hálftíma leik en hinum megin varði Joe Hart nokkrum sinnum vel.

Þetta er í annað sinn sem Manuel Pellegrini kemur í liði í undanúrslit Meistaradeildarinnar en það afrekaði hann einnig með Villarreal fyrir áratug.

Niðurstaðan eru mikil vonbrigði fyrir PSG sem hefur, þrátt fyrir mikil fjárútlát á undanförnum árum, ekki enn tekist að komast upp úr 8-liða úrslitunum.

Agüero klúðrar víti Man City 1-0 PSG



Fleiri fréttir

Sjá meira


×