Fótbolti

Sjáðu Zidane rífa buxurnar sínar | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, lenti í óheppilegu atviki þegar spænska stórliðið vann Wolfsburg, 3-0, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Zidane var að vanda vel til hafður en buxurnar sem hann klæddust virtust helst til of þröngar því þær rifnuðu þegar knattspyrnustjórinn hringsnerist á hliðarlínunni.

Sjá einnig: Ramos: Ronaldo sýndi af hverju hann er besti leikmaður heims

Buxurnar gáfu sig í stöðunni 3-0 en Cristiano Ronaldo skoraði öll mörk Real Madrid í leiknum og tryggði liðinu þar með farseðilinn í undanúrslit. Wolfsburg vann fyrri leikinn í Þýskalandi 2-0 en Madrídingar sneru taflinu sér í vil í kvöld.

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×