Körfubolti

Rússíbani sem fer alla leið í oddaleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pálína Gunnlaugsdóttir er fimmfaldur Íslandsmeistari.
Pálína Gunnlaugsdóttir er fimmfaldur Íslandsmeistari. vísir/stefán
Körfubolti Snæfell hefur aldrei tapað í lokaúrslitum kvenna og Haukakonan Pálína Gunnlaugsdóttir á fimm gullpeninga úr þeim fimm úrslitaeinvígum sem hún hefur tekið þátt á ferlinum. Snæfellsliðið hefur unnið 3-0 sigra á Haukum (2014) og Keflavík (2015) í lokaúrslitum síðustu tveggja ára en ólíkt þessum einvígum er Snæfellsliðið ekki með heimavallarréttinn í úrslitaeinvíginu í ár sem hefst með fyrsta leik klukkan 17.00 í dag á heimavelli Hauka á Ásvöllum.

„Þetta verður einhver rússíbani,“ segir Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, sem var svo nálægt því að slá Hauka út í undanúrslitunum. Grindavík komst í 2-0 en Haukar unnu þrjá síðustu leikina. Daníel hefur þrisvar fagnað sigri á móti Haukum á tímabilinu en lið hans tapaði aftur á móti öllum fimm leikjum sínum á móti Snæfelli, þar á meðal bikarúrslitaleiknum í febrúar.

„Bæði liðin eru með gríðarlega sterkan heimavöll og ég er alveg sannfærður um að þetta fari í oddaleik og endi því í úrslitaleik á Ásvöllum,“ segir Daníel og það má heyra á honum að það er ekkert auðvelt að spá fyrir um næstu Íslandsmeistara.

„Ég giska á það að Snæfell hafi þetta í oddaleik,“ segir Daníel.

graf/fréttablaðið
„Haukar eru með gríðarlega sterkt lið en Snæfell er líka með frábært lið. Snæfell er líka með frábæran erlendan leikmann sem getur klárað leiki upp á sitt eindæmi. Þetta verður barátta á milli Haiden og Helenu,“ segir Daníel. Haiden Palmer hjá Snæfelli og Helena Sverrisdóttir hjá Haukum voru framlagshæstar í undanúrslitunum og í þeim innbyrðisleikjum liðanna sem þær hafa byrjað vel hafa þeirra lið verið í mjög góðum málum.

„Þetta getur dottið báðum megin en í þessu einvígi, sem verður stál í stál, þá tel ég að Snæfell hafi yfirhöndina. Þær eru líka með gríðarlega sterkan leiðtoga í Gunnhildi og eru ríkjandi meistarar sem hjálpar þeim líka,“ segir Daníel.

Haukarnir unnu 19 stiga sigur í síðasta leik liðanna þar sem Haukaliðið var komið í 27-12 eftir fyrsta leikhlutann. Þá voru 49 dagar og einn bikarmeistaratitill hjá Snæfelli frá því að liðin mættust í Stykkishólmi þar sem Snæfell komst í 29-11 eftir fyrsta leikhlutann og vann 84-70.

„Í seríunni okkar á móti Haukum var varnarleikurinn í fyrir­rúmi hjá báðum liðum. Það er það sem Haukarnir ætla að byggja á en Snæfell er með öðruvísi lið en við og hefur innanborðs leikstjórnanda sem er að skora mikið,“ segir Daníel. „Þetta verður gríðarlega skemmtilegt einvígi,“ segir Daníel að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×