Meistararnir byrjuðu úrslitakeppnina á auðveldum sigri | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 17. apríl 2016 11:28 Curry spilaði bara fyrri hálfleikinn í gærkvöldi, en skoraði 24 stig. vísir/getty
Golden State Warriors byrja úrslitakeppnina í NBA-deildinni af fullum krafti, en þeir unnu öruggan sigur á Houston í gærkvöldi, 104-78. Meistararnir frá því í fyrra byrjuðu af miklum krafti og komust í 6-0 og eftir það var aldrei snúið. Þeir unnu fyrsta leikhlutann 33-15 og voru 60-33 yfir í hálfleik, en lokatölur 104-78. Stephen Curry lék á alls oddi í fyrri hálfleik og skoraði 24 stig, en hann spilaði ekkert í síðari hálfleik vegna meiðsla. Hann endaði þó stigahæstur hjá Warriors, en James Harden var stigahæstur hjá Houston með 17 stig. Oklahoma átti ekki í neinum vandræðum með Dallas Mavericks á heimavelli í nótt. Oklahoma setti tóninn í fyrri hálfleik og leiddi 26-11 eftir hann og voru 26 stigum yfir í hálfleik, 59-33. Þeir unnu að lokum 38 stiga sigur, 108-70. Russell Westbrook spilaði vel í liði Oklahoma og skoraði 24 stig og gaf ellefu stoðsendingar, en Dirk Nowitzki skoraði átján stig fyrir gestina frá Dallas. Indiana hefur tekið forystuna í einvíginu gegn Toronto, en Indiana vann tíu stiga sigur í fyrsta leik liðanna í Toronto í gærkvöldi, 100-90. Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi og staðan var meðal annars 43-45, Toronto í vil í hálfleik. Í síðari hálfleik reyndust gestirnir sterkari og stálu heimavallarréttinum af Toronto. Paul George var frábær í liði Indiana, en hann skoraði 33 stig og gaf sex stoðsendingar. Í liði Toronto var Cory Joseph stigahæstur með átján stig. Boston og Atlanta voru með nákvæmlega sama sigurhlutfall í deildarkeppninni í vetur og þau mættast í Atlanta í nótt, en leikurinn var rosalega spennandi. Atlanta vann að lokum eins stigs sigur, 102-101, eftir æsispennandi lokamínútur þar sem Atlanta reyndust þó sterkari. Al Horford spilaði vel fyrir Atlanta, en hann skoraði 25 stig og tók 12 fráköst. Isaiah Thomas skoraði 27 stig fyrir gestina og gaf átta stoðsendingar. Hér að neðan má sjá öll úrslitin og nokkur myndbönd frá leikjum gærkvöldsins.Öll úrslit næturinnar: Golden State - Houston 104-78 Oklahoma - Dallas 108-70 Indiana - Toronto 100-90 Boston - Atlanta 102-101Curry-vaktin: Westbrook og Durant voru í stuði í nótt: Barátta Thomas og Al:
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira