Körfubolti

Marín Laufey vann Freyjumenið í fjórða sinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marín Laufey, til vinstri, í leik með Keflavík fyrr í vetur.
Marín Laufey, til vinstri, í leik með Keflavík fyrr í vetur. Vísir
Marín Laufey Davíðsdóttir, glímukona úr HSK, vann um helgina Freyjumenið á Íslandsglímunni í fjórða sinn á ferli sínum.

Marín Laufey vann allar sínar viðureignir og það gerði Margrét Rún Rúnarsdóttir, Herði, einnig. Það þurfti því glíma til úrslita og hafði þar Marín Laufey betur.

Marín Laufey er einnig leikmaður kvennaliðs Keflavíkur í Domino's-deild karla og því afrekskona í tveimur íþróttagreinum.

Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, UÍA, vann Grettsibeltið og hlaut sæmdarheitið glímukóngur Íslands. Það þurfti einnig úrslitaglímu í karlaflokki og hafði Ásmundur Hálfdán þar betur gegn Pétur Þóri Gunnarssyni, Mývetningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×