Fótbolti

Wolfsburg skellti Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Real Madrid er í erfiðum málum eftir 2-0 tap gegn Wolfsburg í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Leikmenn Wolfsburg báru enga virðingu fyrir stjörnunum frá Madrid og á 18. mínútu skoruðu þeir úr víti.

Markið virkaði sem vítamínssprauta á liðið því Maximilian Arnold kom þeim í 2-0 sjö mínútum síðar. Óvænt staða heldur betur.

Á þessu forskoti tókst Wolfsburg að hanga og Real Madrid á verk að vinna í seinni leiknum.

Fyrra mark leiksins má sjá hér að ofan en hitt hér að neðan.

Maximilian Arnold kemur Wolfsburg í 2-0. Leikmaður Wolfsburg missir tönn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×