Bíó og sjónvarp

Batman v Superman slær í gegn í miðasölunni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Gagnrýnendur virðast ekki vera neitt sérstaklega hrifnir af ofurhetjumyndinni Batman v Superman: Dawn of Justice en það sama virðist ekki gilda um hinn almenna kvikmyndaáhugamann. Myndin hefur slegið hvert metið á fætur öðru í miðasölunni.

Myndin var frumsýnd núna um páskahelgina í Bandaríkjunum og hefur hún halað inn 170 milljón dollara. Er það besta frumsýningarhelgi í sögu Warner Bros sem framleiðir myndina en síðasta myndin í Harry Potter-kvikmyndaseríunni átti það met áður.

Raunar er þetta sjötta besta opnunarhelgi í sögunni en myndin er einnig orðin söluhæsta mynd sögunnar sem ekki er frumsýnd yfir sumartíminn sem hefur hingað til verið sá tími sem aðsóknarmestu myndirnar eru sýndar.

Hingað til hefur fyrsti fjórðurngur ársins í kvikmyndaheiminum verið sá tími sem notaður er til þess að frumsýna þær myndir sem ekki er búist við að gangi vel í miðasölu en það gæti nú breyst.

Kvikmyndaspekingar telja líklegt að vinsældir Batman v Superman muni gera það að verkum að framleiðendur stórmynda muni í auknum mæli horfa til páskahelgarinnar til þess að frumsýna myndir sýnar.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×