Lífið

Trópískur flótti frá skammdeginu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Innblásturinn að munstrunum sótti Tanja í þá kaotísku stund þegar árásargjarnir fuglar birtast á himninum og hringsnúast í undarlegum munstrum.
Innblásturinn að munstrunum sótti Tanja í þá kaotísku stund þegar árásargjarnir fuglar birtast á himninum og hringsnúast í undarlegum munstrum. Vísir/Vilhelm
Fatalínan er tileinkuð okkur sem hlaupum út á stuttermabolnum og spókum okkur í miðbænum um leið og snjórinn hverfur og það fer að glitta í sólina, þó svo að hitastigið sé ekki svo hátt,“ segir fata- og textílhönnuðurinn Tanja Huld Levý um fatalínuna Sýnódísk trópík sem sýnd verður á Eiðistorgi í dag.

Línuna segir hún vera listlækningu við skammdegisþunglyndi og segist hún hafa sótt aðalinnblásturinn í eigið skammdegisþunglyndi. „Yfirleitt hef ég áorkað litlu og skort orku fyrstu mánuði ársins. Í fyrra tók ég þátt í HönnunarMars í fyrsta skipti og var orðin spennt fyrir sýningunni í byrjun janúar. Þannig kom hugmyndin að næstu línu, að hún yrði listþerepía við skammdegisþunglyndi. Þessi lína er í raun veruleikaflótti frá hinum dimma, kalda hversdagsleika sem við Íslendingar upplifum á veturna.“

Í fyrri línu sinni, Eitri í flösku, vann Tanja með fegurðina í ljótleikanum og að þessu sinni vinnur hún einnig með andstæður þar sem hún finnur hið skemmtilega í leiðindunum. Hinu margumrædda skammdegi sem landsmenn ættu velflestir að kannast við. Áhersla er lögð á munstrin í línunni sem eru litrík og digital prentuð á lífræna bómull. „Fyrir munstrin sótti ég innblástur í þá kaotísku stund þegar árásargjarnir fuglar birtast á himninum og hringsnúast í undarlegum munstrum. Þeir eru í raun að gogga í okkur til þess að vekja okkur upp úr þessum trópíska dagdraumi.“

Línan verður sýnd í suðrænu umhverfi Eiðistorgs sem Tanja segir hina fullkomnu staðsetningu fyrir trópískan raunveruleikaflótta. „Þegar það er þörf á raunveruleikaflótta þarf ekki að fara lengra en á Eiðistorg. Á veturna sérðu út um glerhýsið hversu slæmt veðrið er en það er suðræn sæla inni. Eiðistorg hlýjar mér um hjartarætur og ég elska þennan stað.“

Sýnódísk Trópík verður sýnd á Eiðistorgi í dag klukkan 14.00 til 18.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.