Körfubolti

Valur valtaði yfir Hamar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valsstúlkur voru í stuði í kvöld.
Valsstúlkur voru í stuði í kvöld. vísir/anton
Valur vann afar auðveldan sigur, 91-57, á botnliði Hamars er liðin mættust í Dominos-deild kvenna.

Valur var kominn með 10 stiga forskot strax eftir fyrsta leikhluta og slakaði ekkert á. Í lokaleikhlutanum var Hamar búinn að gefast upp og liðið skoraði aðeins sjö stig í lokaleikhlutanum.

Valur er í þriðja sæti með 24 stig en Hamar er sem fyrr á botninum með fjóra punkta.

Valur-Hamar 91-57 (26-16, 25-22, 26-12, 14-7)

Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 33/8 fráköst, Karisma Chapman 18/19 fráköst/7 stoðsendingar/4 varin skot, Hallveig Jónsdóttir 10/8 stoðsendingar, Dagbjört Samúelsdóttir 8, Sóllilja Bjarnadóttir 6, Ragnheiður Benónísdóttir 6/11 fráköst, Regína Ösp Guðmundsdóttir 4/4 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 3/5 fráköst, Jónína Þórdís Karlssdóttir 2, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 1, Helga Þórsdóttir 0, Bergþóra Holton Tómasdóttir 0.

Hamar: Alexandra Ford 24/8 fráköst/5 stolnir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 13/7 fráköst/4 varin skot, Nína Jenný Kristjánsdóttir 5/4 fráköst, Margrét Hrund Arnarsdóttir 4/4 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 4, Jenný Harðardóttir 3, Heiða Björg Valdimarsdóttir 2/4 fráköst, Jóhanna Herdís Sævarsdóttir 2, Erika Mjöll Jónsdóttir 0, Vilborg Óttarsdóttir 0, Karen Munda Jónsdóttir 0, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0/4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×