Körfubolti

Tuttugu stig frá Helenu í öruggum sigri Hauka | Tölfræði kvöldsins

Tómas Þór Þórðarson. skrifar
Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig í kvöld.
Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig í kvöld. vísir/vilhelm
Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig, tók fjórtán fráköst og gaf sjö stoðsendingar þegar Haukar unnu Grindavík, 70-57, í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Grunninn að sigrinum lögðu Haukar í öðrum og þriðja leikhluta sem liðið vann samtals með níu stiga mun en Grindavík gaf toppliðinu alvöru leik í kvöld.

Pálína María Gunnlaugsdóttir bætti við 15 stigum fyrir Hauka og Sylvía Rún Hálfdánardóttir skoraði þrettán stig og tók þrettán fráköst.

Hjá Grindavík var Whitney Frazier stigahæst með 25 stig auk þess sem hún tók 19 fráköst. Næst kom Petrúnella Skúladóttir með sjö stig af bekknum.

Guðbjörg Sverrisdóttir, systir Helenu, var í ham hjá Val sem vann Stjörnuna á útivelil, 74-67. Guðbjörg skoraði 24 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar

Margrét Kara Sturludóttir var stigahæst hjá Stjörnunni með 15 stig og þá tók hún 18 fráköst en það dugði ekki til.

Haukar eru á toppnum í deildinni með 40 stig, tveimur stigum á undan Snæfelli en Valur er í þriðja sæti með 26 stig. Grindavík er í því fjórða með 22 stig, tveimur stigum á undan Keflavík.

Haukar-Grindavík 70-57 (18-15, 15-10, 16-12, 21-20)

Haukar: Helena Sverrisdóttir 20/14 fráköst/7 stoðsendingar, Pálína María Gunnlaugsdóttir 15/6 fráköst, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 13/13 fráköst/4 varin skot, Auður Íris Ólafsdóttir 5, Þóra Kristín Jónsdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 4, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Dýrfinna Arnardóttir 2/4 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2, Shanna Dacanay 1.

Grindavík: Whitney Michelle Frazier 25/19 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 9/11 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 7, Ingibjörg Jakobsdóttir 6, Íris Sverrisdóttir 4, Jeanne Lois Figeroa Sicat 4, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2.

Stjarnan-Valur 67-74 (17-21, 20-14, 13-21, 17-18)

Stjarnan: Margrét Kara Sturludóttir 15/18 fráköst/7 stoðsendingar, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 14, Adrienne Godbold 13/8 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 12, Bára Fanney Hálfdanardóttir 6, Heiðrún Kristmundsdóttir 3, Erla Dís Þórsdóttir 2, Kristín Fjóla Reynisdóttir 2.

Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 24/8 fráköst/7 stoðsendingar, Karisma Chapman 15/12 fráköst/3 varin skot, Hallveig Jónsdóttir 12/4 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 11/11 fráköst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 7/4 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 3, Sóllilja Bjarnadóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×