Bíó og sjónvarp

Manstu ekki nafnið á myndinni þarna með þessum? - Þetta er mögulega lausnin

Samúel Karl Ólason skrifar
Ein mest gleymanlegasta mynd allra tíma.
Ein mest gleymanlegasta mynd allra tíma.
Finnska fyrirtækið Valossa telur sig hafa fundið lausn við áratugagömlu vandamáli. „Hvað hét bíómyndin þarna? Þar sem leikarinn var með sverðið?“ Valossa telur sig hafa gert heimasíðu þar sem hægt er að finna svör við spurningum sem þessum.

Á síðunni er hægt að leita að nafni kvikmynda eftir leikurum og mörgu öðru. Samkvæmt Independent greinir tækni Valossa meira en þúsund atriði við hverja mynd.

Síðan er enn í þróun en nú þegar eru rúmlega 45 þúsund titlar í gagnagrunni hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×