Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Valur 58-63 | Valskonur í frábærri stöðu Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. mars 2016 21:30 Karisma Chapman er að spila vel fyrir Val þessa dagana. Vísir/Vilhelm
Valskonur gengu langt með að tryggja sér 3. sætið í Dominos-deild kvenna með 63-58 sigri á Grindavík í kvöld en Valur er með fjögurra stiga forskot á Grindavík þegar fjórar umferðir eru eftir. Grindavík byrjaði leikinn af krafti og leiddi verðskuldað framan af í leiknum. Valsliðið átti í erfiðleikum í sóknarleiknum, voru að tapa of mörgum boltum og þriggja stiga skotin ekki að detta. Með góðum kafla í þriðja leikhluta náði Valsliðið forskotinu og leiddu þær leikinn allan fjórða leikhluta. Grindarvíkurliðinu tókst að minnka muninn niður í eitt stig í fjórða leikhluta en lengra komust þær ekki og þurftu að sætta sig við svekkjandi tap. Fyrir leikin voru aðeins tvö stig sem skyldu liðin að í töflunni. Valskonur sátu í 3. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 19 leiki en Grindavík gat jafnað þær að stigum með sigri í kvöld. Þá gat Grindavík komist upp fyrir Valskonur í töflunni með sigri en Valskonur þurftu á ellefu stiga sigri til þess að komast Liðin skiptust á körfum fyrstu mínútur leiksins en Grindavíkurliðið náði betri tökum á leiknum eftir því sem leið á leikhlutann. Áttu þær frábæra rispu þar sem þær breyttu stöðunni úr 4-7 í 17-7 og tóku verðskuldað forskot inn í annan leikhluta 20-15. Grindavíkurliðið byrjaði annan leikhluta af sama krafti og náði þegar mest var ellefu stiga forskoti en þá virtist Valsvörnin vakna til lífsins. Hófu þær að spila betri vörn og loka á sóknir Grindvíkinga en sóknarleikur lisðins náði aldrei flugi í fyrri hálfleik. Fór sóknarleikur liðsins að mestu fram í gegnum Karismu Chapman en hún var með 11 af 25 stigum liðsins í fyrri hálfleik. Gekk liðinu illa að finna opin skotfæri og hitti liðið ekki úr einu þriggja stiga skoti í fyrri hálfleik í sjö tilraunum. Þá tapaði liðið 13 boltum í hálfleiknum á meðan Grindavík tapaði aðeins 5 boltum. Grindavík leiddi 35-27 í hálfleik og var forystan verðskulduð. Varnarleikur liðsins var til fyrirmyndar en einbeitingarskortur í sóknarleik liðsins hélt Valsliðinu inn í leiknum. Grindavík virtist ætla að halda forskotinu áfram en vandræði Valsliðsins fyrir utan þriggja stiga línunna héldu áfram framan af í leikhlutanum. Var liðið búið að klúðra tíu tilraunum í röð þegar liðið fór skyndilega að hitta. Þrír þristar í röð hjá Valsliðinu þýddu að þær náðu skyndilega sex stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann 53-47 og virtist öll stemmingin vera hjá gestunum, bæði í vörn og sókn. Í fjórða leikhluta hélt Valsliðið forskotinu allt til loka en Grindvíkingum tókst að minnka muninn niður í eitt stig þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Þá setti Valsliðið aftur í gír en þriggja stiga karfa Bergþóru Holton Tómasdóttir gekk langt með að klára leikinn þegar mínúta var eftir. Grindavík náði ekki af stilla upp í almennilegar lokasóknir og þurftu leikmenn liðsins því að sætta sig við svekkjandi tap eftir að hafa leitt lengst af fyrstu þrjá leikhluta leiksins. Karisma Chapman átti sannkallaðan stórleik í liði Vals með 27 stig og 13 fráköst en í liði Grindavíkur var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir með tvöfalda tvennu, 13 stig og 12 fráköst. Hallveig: Vorum ömurlegar í vörn í fyrsta leikhluta„Þetta var gríðarlega mikilvægt og ótrúlega sæt tilfinning eftir þessa hræðilegu byrjun. Við sýndum flottan karakter með því að vinna þetta upp og taka sigurinn,“ sagði Hallveig Jónsdóttir, leikmaður Vals, sátt að leikslokum. „Ég get eigilega ekki svarað því hvað fór úrskeiðis í byrjun. Þetta var alveg hreint út sagt hræðilegt. Við gátum ekkert í sókn og vorum ömurlegar í vörn. Það vantaði alla grimmd í liðið og við vorum einfaldlega bara hræddar.“ Valsliðið hélt Grindvíkingum í 15, 12 og svo loks ellefu stigum í síðustu þremur leikhlutunum en varnarleikurinn skóp sigurinn í kvöld. „Það var það sem gerði útslagið í dag. Við tókum leikhlé snemma og töluðum um að þetta væri hreint út sagt ömurlegt og að við þyrftum að rífa okkur í gang sem við og gerðum og breyttum þessum leik.“ Eftir erfiðleika framan af við þriggja stiga línuna hittu Valskonur út hverju skotinu á fætur öðrum undir lok þriðja leikhluta. „Þetta er allt í hausnum hjá manni. Maður þarf að halda áfram og hugsa að næsta skot detti ofaní. Maður gleymir þessu og heldur áfram með leikinn.“ Hallveig hrósaði baráttuanda liðsins. „Það er það helsta sem við tökum úr þessum leik fyrir næstu leiki. Við ætlum að reyna að vinna út og við getum byggt á þessu að hafa unnið þótt að við höfum ekkert spilað neitt frábærlega.“ Sigrún Sjöfn: Förum allar út í okkar eigin horn„Það var súr stemming. Við vorum flottar í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik vorum við bara allar í sitt hvoru horninu,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundardóttir, leikmaður Grindavíkur, svekkt aðspurð hvernig stemmingin hefði verið inn í klefanum eftir tapið. „Við vorum að reyna of mikið að gera eitthvað upp á eigin spýtur og við fórum að tapa boltanum trekk í trekk. Það gengur ekki í mikilvægum leik eins og þessum.“ Sigrún var ósátt með sveiflukenndan sóknarleik liðsins í dag. „Varnarleikurinn var ágætur, við fáum 63 stig á okkur sem er í lagi en við hættum algjörlega að spila sem lið og vorum allar í okkar eigin horni,“ sagði Sigrún og bætti við: „Við skiptum um vörn og fengum fjóra þrista á okkur á skömmum kafla undir lok þriðja leikhluta og þá missum við bara dampinn. Þá fórum við í einhverja fýlu, ég skil ekki hvað við vorum að gera.“ Sigrún var ósátt með dómgæsluna í kvöld en sagði þó að hún hefði ekki hallað á annað hvort liðið. „Það var lítið dæmt í kvöld og það voru fleiri ósáttir en ég. Maður vill auðvitað fá meira þegar maður sækir á körfuna en þeir stóðu sig ágætlega. Við létum dómgæsluna kannski fara of mikið í taugarnar á okkur í kvöld.“ Grindavíkurkonur náðu að minnka forskotið niður í eitt stig í fjórða leikhluta en lengra komust þær ekki. „Við vorum að tapa boltanum á mikilvægum stundum. Það var eins og hann væri heitur eða sleipur. Við vorum að kasta honum allt of oft frá okkur.“Tweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild kvenna Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Arftaki Kristjáns óvænt hættur Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira