Bíó og sjónvarp

Fjölskylda Ninu Simone æf vegna nýrrar kvikmyndar um tónlistarkonuna

Birgir Olgeirsson skrifar
Zoe Saldana leikur Simone en aðdáendur tónlistarkonunnar gagnrýna harkalega að húðlitur leikkonunnar virðist hafa verið gerður dekkri fyrir hlutverkið.
Zoe Saldana leikur Simone en aðdáendur tónlistarkonunnar gagnrýna harkalega að húðlitur leikkonunnar virðist hafa verið gerður dekkri fyrir hlutverkið. Vísir/YouTube/Getty
Fjölskylda tónlistarkonunnar sálugu, Ninu Simone, er ævareið vegna væntanlegrar kvikmyndar sem byggð er á ævi hennar.

Stikla úr myndinni Ninu var frumsýnd í gær þar sem leikkonan Zoe saldana fer með hlutverk Simone. Myndin hefur verið í bígerð í þó nokkurn tíma en miklar tafir hafa orðið á framleiðslu hennar. Þegar fregnir bárust af því árið 2012 að Saldana færi með hlutverk tónlistarkonunnar heyrðust strax gagnrýnisraddir sem sögðu húðlit leikkonunnar vera „of ljósan“, en Saldana er Bandaríkjamaður af suður-amerískum uppruna.

Í stiklunni virðist húð leikkonunnar hafa verið gerð dekkri fyrir hlutverkið og gagnrýndu aðdáendur Ninu Simone það harðlega og sögðu það vera vanvirðingu við arfleið hennar.

Í kjölfar þeirrar gagnrýni vitnaði Saldana í Simone sjálfa á Twitter síðu sinni:

Sem féll í grýttan jarðveg fjölskyldu tónlistarkonunnar sem bað Saldana um að gera það aldrei aftur:

Á sínum tíma þegar tilkynnt var að Saldana myndi leika Simone sagði dóttir tónlistarkonunnar, Lisa, við The New York Times að móðir hennar hefði mátt þola mikið aðkast vegna útlits síns. „Móðir mín ólst upp á þeim tíma þar sem hún var sögð vera með of breitt nef og of dökkan húðlit. Útlitslega séð var þetta val ekki besti kosturinn.“

Fjölskylda Ninu Simone sagði í gær að hún vonaðist til að fólk færi að átta sig á því hversu sársaukafullt væri að sjá þá mynd sem dregin er upp af tónlistarkonunni:

Í kjölfarið birti fjölskyldan brot úr lögunum Go To Hell og The Blackness. Þá hvatti hún til þess að tónleikahaldarar myndu efna til heiðurstónleika fyrir tónlistarkonuna á frumsýningardegi myndarinnar.

Nina Simone fæddist árið 1933 í Norður-Karónlínu. Hún var skírð Eunice Waymon en tók nafni Nina Simone árið 1954 til að leyna því fyrir móður sinni að hún væri að leika jass og blús á veitingastað í Atlanta-borg, en móðir hennar var á því á þeim tíma að það væri tónlist djöfulsins. Hún hljóðritaði rúmlega 40 plötur á ferlinu en hún lést 70 ára gömul árið 2003.

Kvikmyndin Nina verður frumsýnd í apríl.

Þeir sem eru áhugasamir um þessa mögnuðu tónlistarkonuna geta nú þegar horft á heimildarmynd um ævi hennar, What Happened, Miss Simone?, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×